PásaAnna Rós Finnsdóttir

Eins og glöggir menn sá, þá hef ég ekki verið sú virkasta hér inni.
Það hefur verið inn í myndinni að ég reyna að gera síðu fyrir fjölskylduna með það í huga að setja myndir af hrossunum.

Ég er byrjuð á að henda aðeins inná www.123.is/vindheimar  Ætla að setja þar inn fréttir og slíkt. Einnig er ég búin að opna inn á Gunnuna. Þar er sama leyniorð og var áður.

Tjus

Ónæmiskerfið að brotna niður af spenningiAnna Rós Finnsdóttir

Ég er að farast úr spenningi!!!!!!!!

Arnar Már gerðist svo frægar að bjóða dömunni til útlanda og munum við fara til sólarlanda og njóta lífsins. Get varla beðið eftir að dífa tánnum í sandinn og fá mér Sangríu. það eru ekki nema tíu ár síðan ég fór í sólina síðast.
Guðrún Brynja er orðin mjög spennt og hlakkar ekkert smá til að fara að sjá krókódílana.
Við höfum varla haft tíma til að anda þar sem undirbúningurinn er búinn að vera svakalega stuttur. Allt þarf að verða orðið klappað og klárt um helgina.

mikil stemmning frammundan...

Doppus og Stebbi muna sjá um allt hér heima og verður húsið orðið málað og fínt þegar við komum aftur hee...

Annars er ég bara búin að njóta sumarsins. Við höfum verið að hamast aðeins í sumarhúsinu þar sem var verið að skipta um glugga. Sauðburður gekk vel og allar nema ein stórklikkuð kind fóru upp í fjall. Styrnir fer á landsmót fyrir okkur og mun standa sig með prýði. Fúlt að geta ekki séð hann en við kaupum bara spóluna ef honum gegnur vel.
Búin að fara á Sex and the city. Gulla og ég fórum og skemmtum okkur vel.

Vormisseri búið og endalaus sæla framundanAnna Rós Finnsdóttir

Já sæll...

Alltaf jafn dugleg að blogga.. en nú eru aðrir tímar og mun ég reyna að koma því allra mikilvægasta frá mér.
Einkunnir eru komnar í hús og kellan náði öllu með glanz.
Undanfarið er ég bara búin að vera rækta arfatækninn í sjálfri mér og búin að ná í skít í runnana og tíni svo arfa inn á milli. Eintóm gleði hehe.. Sló tvær flugur í einu og tíndi orma í leiðinni ef ég skildi fara veiða í sumar.
Annars hitti ég Guðrúnu Petru um daginn og við skelltum okkur í sund. Það var ótrúlega gott, ekki búin að sjá krúttuna svo lengi. Gellan að fara útskrifast sem hjúkrunarfræðingur, þannig að nú mun ég hringja í hana þegar eitthvað amar að ;)
Ester kíkkti og við lágum í sólinni með rjómaís talandi um næstu aðhalskúra hehe...

Fullt búið að vera gerast en ég nenni ómögulega að telja það allt upp. Jarðskjálfti og fleira.

Hlakka til að fara í sex and the city partý hjá Fnati þegar hún kemur frá USA. það verður sko djammað.. úff bezt að leggja sig og safna orku til 21 júní..

En þar sem ég er forvitin að eðlisfari gerið mér það til geðs að skrifa í gestó hehe... Einskonar sumargjöf;)

Ú beibeAnna Rós Finnsdóttir

Ég fór á djammið á Laugardaginn viti menn hehehehehe

Ansi ströng dagskrá búin að vera. Vorum í fermingu hjá Hákoni syni Hjartar og Betu. Síðan fór mín heim að s´jæna sig fyrir djamm. Guðrún kom og við djúsuð hér. Fórum síðan heim til Heiðdísar þar sem fullt var af massívum gellum.
Vantaði þig náttla Diddú mín og Bríet´... ussusss
Síðan var farið í sjallann á Ný dönsk og dansað og dansað...

Þetta var ógó gaman. Síðan á ég svoo vel upp alda dömu sem svaf út með mér þar sem mamman var pínu þreytt. kallinn fór nefnilega í rekstur í birtingu.

Á sunnudeginum þegar ég var búin að endurheimta manninn frá hestunum fórum við til Dalvíkur og fórum í sund og til ömmu. Áttum semsagt hinn fullkomna fjölskyldudag.

búin að afreka það einnig að fara á andarpollinn tvisvar. mjög gaman þótt það mætti bæta aðstöðuna þar. óðum drullu upp í hné.

þannig að ef einhver hér dúkkar inn og sér um bæjarmálinn þá væri gott að fá þetta í lag. gæti hugsað mér nýja girðingu ásamt tröppum þar sem drullubrekkan er. ok Þá er það afgreitt

en annars er bara lokaspretturinn í skólanum núna. Fara bresta á próf og síðan er vinnuhelgi og allir í ættinni eiga víst afmæli núna þannig að ég verð eitthvað að fara hugsa minn gang og fara skipuleggja hverja einsustu mínútu.

En gaman. Var 3-9 apríl í Hrafnagilsskóla i vettvangsvinnu. Alveg hreint frábært. Bara gaman að vera kennari.

Verð að fara massa það í ræktinni til að geta fengið mér svona alvöru kennaradress HAHAHAHAHA

jÆÆJA MÍNIR SÖNNU VINIR  sem ekki eru búnir að gefast upp á þessum annars mikla bloggara

takk fyrir mig og góða nótt.

Síðan verður gert skurk hér inni um leið og betra færi gefst

Miss ja
A

Japanskur kjúklingaréttur með stökkum núðlumAnna Rós Finnsdóttir

Jamheee kjúlli sem Gulla frænka gaf mér og Guðrúnu rut í matarboði

6-8 kjúklingabringur
olía til steikingar
sweet hot chili sósa (eftir smekk)

1 bolli ólífuolía
1/2 bolli balsamicedik
4 msk sykur
4 msk soyasósa

2 pokar súpunúðlur
200g möndluflögur/kókosflögur
2-4 msk sesamfræ

Blandað salat
2 öskjur kirsubrjatómatar skornir í tvennt
2 mangó skorin í bita( má nota ferskjur eða niðursoðið mangó)
1 rauðlaukur skorinn í sneiðar

Skerið bringur í strimla og snöggsteikið.
Hellið sweet hot chili sósu yfir og látið malla í ca 10 mín
Setjið ólivuolíu, balsamicedik, sykur og soyasósuna í pott og látið suðuna koma upp. Hrærið í af og til svo hún skilji sig ekki.
Brjótið núðlur í litla bita og ristið á þurri pönnu svo þær verði stökkar. Setjið á disk og látið kólna. Ristið möndluflögurnar og sesamfræin sitt í hvoru lagi, setjið á diskinn með núðlunum.
Setjið salat  í mót ásamt tómötunum, mangóinu og lauknum. Dreifið núðlum, möndlu/kókosflögum og sesamfræjum yfir.
Dreipið sósunni yfir þetta og setjið að lokum kjúklingastrimlana ofan á.

Þarfnast ekki neins annars meðlætis.

verði ykkur að góðu.

Fína stúdína...Anna Rós Finnsdóttir

Dagur 2 í skólabyggingunni.

Upprifjun á degi 1 nokkuð góður bara. Hitti allar gellurnar. Gekk bara vel í örkennslu sem ég var búin að kvíða svo fyrir. Fór í Kópavoginn og snúllaði mér með frændfólkinu og ´siðan kom Bjartey og napaði mér. Fórum á KFC og síðan heim til hennar. Hún er alveg komin á síðustu vikurnar og fer að koma með lítinn boy. Verður gaman þegar fjölskyldan fer að koma norður í sumar.

En núna er bara svona pritti mutch að reyna koma mér ´gang til að fara læra og læra á nýju tölvuna mína sem ég er í skýjunum yfir. á reyndar eftir að fá mér íslenska stafi þannig að ég er pínu lost. En allt að koma.

Eigið þið góðan dag þau ykkar sem enn nenna að skoða þessa síðu.

P.s. Brynhildur mín. Ég set uppskriftina inn ASAP

Aðeins byrjuð að slaka...Anna Rós Finnsdóttir

Þvílíkur dagur..
Var að skila portfolio möppunni minni í myndmennt klukkan fjögur í dag. Náttúrulega á síðasta séns eins og vanalega. Það er nú bara það að það opnast ekki fyrir þessa ótrúlega hæfileika fyrr en ég sé það út að engar undankomu er auðið og allar afsakanir búnar að þá og aðeins þá sest ég niður og fer að gera eitthvað.

;) Setti sumar myndirnar í plast áður en þær voru orðnar þurrar;)

En mikið er annars dásamlegt að þessu sé lokið og hefði verið ansi sniðugt að gefa sér tíma í þetta þar sem þetta var nú bara gaman.

En morgundagurinn er aldeilis þéttriðinn...

Laga til laga til laga til þar sem ég ætti í rauninni að vera að laga til núna en ég nenni því ekki.

Versla og síðan að leira smá;)

Síðan er það skírn klukkan eitt
Partý hjá mér klukkan sex með Arnari, hananum í hópnum og síðan þeim spræku Helenu, Diddú, Gullu og Bríet.
Síðan partý klukkan sjö hjá Aldísi
Árshátíð klukkan eitthvað og svooo bara djammmmmm

Við erum að tala um gullþema;)

Litla prinsessan verður í góðu atlæti hjá Gullu frænku eða hjá Afa.

En mikið skelfingar óskup er gaman að verða dálítið hífaður...

Astala vista beibís all a raound the world

Anna Rós Finnsdóttir

Algjör skrudda
Guðrún Brynja álfaprinsessa.

Allt gert til að geta tekið sér smá pásu í lærdómnum..Anna Rós Finnsdóttir

Þó lærdómurinn gangi vitanlega ávalt fyrir er geymlsan mín orðin tandurhrein;) Búin að flokka alla barnafatakassa og þrifa hátt og lágt. Þetta verur nú að vera klárt ef maður skildi setja í annað;)

Búin að vera mála og skera út blöð fyrir myndmennt. Ótrúlega gaman en frekar dauft yfir því þegar ég er að gera þetta ein. Myndmennt var svona mas tími hér áður. Nú er ég bara ein niður í kjallara.

Inga Sóley, Óli og Sunna Margrét ofurskvísa kíktu á mig um daginn og gistu eina nótt. Það var ótrúlega gaman. Þó að það sé ekki nema 1:40 klst keyrsla þá hittumst við alltof sjaldan. Það hefur reyndar hist svo skemmtilega á að þegar ég hef verð fyrir sunnan hefur Inga Sóley líka verið þar;)

Hvað ætli maður geti tekið marga eyjafjarðahringi á 1:40?

Jæja nú set ég borðið í hnefann og held áfram að læra..

Daman kemur nebbla heim klukkan tvö, en hún er búin að vera heima með eyrnabólgu og kvef.

Hún er hinsvegar algjört hörkutól þessi elska

Fullt af snjó og skítakuldiAnna Rós Finnsdóttir

Hér er búið að snjó svo mikið að maður kemst ekki um göturnar vegna þess að alltaðar er verið að ýta göturnar og svo er ekki nóg með það. Heldur tekur strætó upp á því að svína þvílíkt á mér. Þoli ekki almenningsbíla JAKK

En nóg um úrillsku..

Gerði japanskan kjúklingarétt hérna áðan sem ég fékk hjá Guðrúnu frænku. Hann er ekkert smá góður. Nú er það bara hollustan.
Eftir þessa vinnutörn mun verða byrjað í ræktinni. Andinn er reyndar ekki alveg kominn yfir mig en vonandi kemur hann um helgina.

Jæja litlan krefst þess að fá athygli þannig að best að sinna því. Búin að vera crazy í dag úffffff

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Slide

Prófíll

  • Nafn: Anna Rós Finnsdóttir
  • Netfang: annafinn@khi.is
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Sjúkraliði og kennaranemi
  • Hjúskaparstaða: Lofuð og dáð ;)
  • Um mig: Stórklikkuð ung kona sem er framúrstefnulega þrjósk og tala mitt eigið tungumál þ.e. annlenskuna eins og hún er kölluð. Á fyrsta flokks gæðing sem er góður til undaneldis;)